10.09.2007 23:53:46 / palloskar

Ástir og átök

Lítið hefur borið á skrifum hér á bloggsíðunni undanfarið aðallega vegna þess að hluti vinahópsins er lagstur í kör af völdum ástarsorgar. Ganga þeir svo langt í sorg sinni að hvorki er hægt að mæta í vinnu né skóla.

Eftir að fréttastofu bárust þessi tíðindi fórum við tveir fulltrúar hópsins á stúfana með myndavélina og náðum mynd af þeim tveimur sem leiða hinn ástsjúka hluta hópsins.

Við viljum ekki nefna nein nöfn en hér á eftir koma myndirnar sem við náðum í dag...

Þennan hérna gómuðum við glóðvolgann á hólmaflötinni öskrandi "Mig langar að segja þér svo margt sem ég hugsa!"

Við þurftum að hafa aðeins meira fyrir næstu mynd en til þess að ná henni þurfti GeiR að klifra uppá svalir á annarri hæð á Einigrundinni og brjótast þaðan inn, þar sem viðkomandi er búinn að læsa sig inni í herberginu sínu og harðneitar að fara útúr húsi næstu þrjú árin að minnsta kosti.

Bobbi diskur og Geiri graði kveðja úr stuðinu!

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.07.2007 00:25:21 / palloskar

Detti mér allar lýs úr höfði..

Jæja þessi færsla er tileinkuð Andra, einnig þekktum sem Andra vitlausa eða Andra nakta þar sem víðsfræg nektarmaraþon hans eru fræg alla leið til Borgarness og jafnvel lengra, en þetta er maður sem kallar ekki allt ömmu sína, og það er ekki alvöru fyllerí hjá honum nema hann skokki nakinn heim til sín eða sofi í runna.

En mér voru að berast fregnir um það núna áðan að það stæði til að kæra hann fyrir kynferðislegt áreiti og nekt á almannafæri, enda mottóið hans "Nei er ekkert svar", og Andri var einmitt staðinn að verki við það að mæta nakinn uppí rúm til 13 ára stelpu gegn hennar vilja, en það var kærasti stúlkunnar sem greip hann glóðvolgann, en honum leist síðan svo vel á stæltann líkama Andra að hann reyndi að fá stúlkuna til lags við þá báða saman.

Ég náði fyrstur manna einkaviðtali við stúlkuna þar sem hún lýsir þessari erfiðu lífsreynslu á þennan veg:

arna says:

arna says:neitaði að fara

arna says:þeir ætluðu ekkert að fara frá utihurðinni

arna says:hann var i nærbuxum og hlyrabol, eg svona okei komiði þá ekki vekja mömmu og svo for hann ur öllum fötunum i ruminu minu!

arna says:og oj

arna says:prumpaði

arna says:og lá bara og ætlaði ekekrt að fara

arna says:svo var bjarki alltaf að toga upp bolinn minn og þeir voru að segja mer að koma á milli sín

arna says:báðir ógeðslegir og blindfullir með ógeð lykt

arna says:svo lopksins sagði andri já ég er farinn heim og var buinn að koma sér í nærbuxurnar þá svona labbaði ég út og hann kleip svona í rassinn á mér

arna says:þegar eg kom, ut fyrst þegar þeir komu stóð andri bara allsber og sagði "Þetta er allt í lagi, bara vont fyrst"

Já, greyið stelpan var alveg í losti og heyrst hefur að hún hafi þurft að leita sér áfallahjálpar eftir þetta hræðilega atvik.

Ég náði því miður ekki tali af Andra vegna þessa en náði sem betur fer mynd af honum til þess að aðrar ungar stelpur geti passað sig á honum.


» 17 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 14:32:46 / palloskar

If you don't jump your english!

Já ég fann mig knúinn til þess að koma inn nokkrum orðum hérna eftir gærkvöldið.

En þó ég skammist mín fyrir það, þá fórum við strákarnir á Darude í gær, og auðvitað var ég edrú einsog hefur verið uppá teningnum undanfarnar helgar en það er alltaf gaman að fylgjast með drukknu fólki þó að fjörið hafi ekki byrjað almennilega fyrr en á leiðinni heim.

En Hrannar stóð auðvitað fyrir sínu, kom þarna inn rétt svo standandi í lappirnar og auðvitað greip maður tækifærið og fór að djöflast einhvað í honum...

Róbert: Hrannar ertu búinn að vera að klípa í einhverjar ókunnugar túttur í kvöld?

Hrannar: HAAAA? Tútturrrr? Ég err til!

Ætlaði að ná honum í viðtal áðan á msn vegna þessa og einnig annarra atburða en það gekk ekki betur en svo;

Róbert says: warap

Hrannar says: dont kn wo

Hrannar says: er fastur i rvk

Hrannar says: i einhverju husi sem eg ve it ekki hvar er

Við óskum honum bara alls hins besta.

En maður kvöldsins var að sjálfsögðu Andri Már Marteinsson sem staðfesti enn og aftur að hann á skilið viðurnefnið sem svo margir eru búnir að bendla við hann, Andri vitlausi, í höfuðið á frændum sínum.

Á leiðinni heim datt honum það snjallræði í hug að fara drekka óblandaðan landa, og endaði það að sjálfsögðu í tómri vitleysu, hann reyndi t.d. ítrekað að hoppa útúr bílnum sínum á 100 km hraða og þegar við vorum komnir að miðgarði fór hann útúr bílnum, afklæddist og ákvað að fara að synda með svönunum. Ég og Ronni tjernóbíl náðum að drösla honum aftur inní bílinn og lögðum af stað en þá tók hann uppá því að fara að míga útúm gluggann á bílnum sínum.

Skemmtunin endaði síðan þannig að Andri ætlaði að sofa út í orðsins fyllstu merkingu en einhverntíman um 9 leytið í morgun fann lögreglan hann þó sofandi inní einhverjum garði og kom honum heim til sín.

Það var ekki meira sem ég vildi koma að, eini maðurinn sem skrifar inná þessa síðu þakkar fyrir sig.


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.04.2007 14:11:30 / palloskar

If you play with your monkey you're going to get crazy!

 Já eins og flestir landsmenn vita sem lesa mbl.is eða aðra álíka miðla, ja eða bara horfa á fréttatímann þá vorum við strákarnir að koma frá Hollandi núna á föstudaginn þar sem við gerðum okkur góða ferð til Heerenveen eða hjérenfæn einsog við Hollendingarnir kjósum að kalla þetta.Ferðin byrjaði þannig að ég og Andri þurftum að bíða í fimm tíma í miðborg Amsterdam eftir Þór nokkrum Birgissyni sem datt það snjallræði í hug að millilenda í Svíþjóð.Í stuttu máli þá bar það helst til tíðinda þennan dag að við vorum fastir í einhverjum smábæ með leiðinlegasta kínverja sem ég hef nokkurn tímann talað við, fengum heimsklassa leiðsögn um rauða hverfið og komumst svo loksins til Heerenveen allir þrír þar sem við tókum smá pöbbarölt og svo bara heim til Arnórs í svefn eftir erfiðan dag.

 

Á laugardeginum kíktu í heimsókn krakkar frá Akranesi, Eva, Birkir, Björn og Dísa og tókum við djamm með þeim en það verður einhver annar að vera til frásagnar um það, ég fór víst á kostum á dansgólfinu á Club DNA en ég man fyrst eftir mér á kebab veitingastaðnum, eftir að við fórum af klúbbnum, þar sem mér tókst að telja öllum sem voru þar inni trú um að Andri væri samkynhneigður (ekki erfitt verk). Djammið endaði svo þannig að ég og Andri fengum einhverjar píur til þess að skutla okkur heim á reiðhjólum.

 

Á þriðjudeginum dró það helst til tíðinda að lýðræðislega kosinn leiðilegasti maður ferðarinnar (allt í gríni gert), Þór Birgisson fór heim til Íslands og seinna sama dag koma Andri Júlíusson í staðinn, Andri Már keypti sér líka buxur þann dag og lét einhvern samkynhneigðan austurlandabúa stela þeim frá sér en hann lét það ekkert á sig fá og keypti bara aðrar alveg eins.

 

Skelltum okkur í go-kart á miðvikudeginum í annað skipti í ferðinni og ég verð að segja það að miðað við að hafa verið fullur bæði skiptin sem við fórum í go-kart þá var ég langbesti driverinn þarna, alltaf með hröðustu mönnum þrátt fyrir ölvun.

Ég þarna vinstra megin að taka framúr Andra.

 

Á fimmtudeginum lenti ég síðan í einu af skemmtilegri djömmum sem ég hef upplifað. Byrjuðum á því ég Andri og Bjössi að tjékka okkur inn á hótel sem var svona 5 km í burtu frá miðbænum fórum svo út að borða með Arnóri, Andra og fjölskyldunni hans Arnórs og tókum þá skyndiákvörðun að detta bara í það, fórum á svona billjardbar og spjölluðum þar við e-h stelpur sem voru með því besta sem maður sá þarna í hollandi, fórum síðan með þeim á Bacchus sem er fimmtudagsklúbburinn þarna og vorum fljótir að gera okkur grein fyrir því að við vorum laaaaangflottastir þarna, vorum allir orðnir aumir í rassinum af því hvað var mikið klipið í hann.

 

Löðuðum meira að segja gaurana að okkur (sumir meira en aðrir reyndar...)En svona um 3 leytið fóru Björn Jónsson og Andri Már uppá hótel með öngulinn í rassgatinu á meðan ég og Andri Júll vorum alveg með píurnar þarna, og reyndar bættist einn niggari með gulltönn í hópinn.

 

Eftir gott klukkutíma spjall við einhvern hermann sem var orðinn besti vinur minn þarna þá vöktum við Arnór sem var á leiðinni á morgunæfingu og fengum lánað hjólið hans og stelpurnar fylgdu okkur á hótelið þar sem leiðir skildu og kallinn fór að sofa.

Vaknaði svo drulluþunnur 2 tímum seinna alveg að missa af lestinni uppá flugvöll og þegar þangað var komið spottuðu flugfreyjurnar að það væri celeb í vélinni og buðu mér vinsamlegast að setjast í business class á meðan Andri (Már) var sendur einhvert lengst aftur í vél.

 

Ef einhver sem les þetta blogg veit úr hvaða lagi titillinn á þessu bloggi er þá fær hann ævivarandi respect frá mér og boð um að gerast heiðursmeðlimur stórveldisins.  

» 17 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 12:24:26 / palloskar

Dans Villta Mikka

Já ég lenti í nokkuð skondnu atviki í gær.
Ég og Þór Byrgisson (kenndur við byrgið) ákváðum klukkan hálf tólf í gærkvöldi að leigja okkur vídjó, brunuðum útá vídjóleigu og tókum 2 myndir í flýti, Barely legal og Godfather 3 , fórum heim til mín og kveiktum á kertum, settum doritos í skál, náðum í hákarl og opnuðum tvær ískaldar kókflöskur.

Ákváðum að byrja að horfa á Barely Legal, síðan þegar svona fimm mínútur eru liðnar þá föttuðum við að við horfðum á þessa mynd saman sirka 3 vikum áður.
En það var alltílagi því við vorum með Godfather, smelltum henni í spilarann og ætlum að byrja að horfa, neinei, þá vorum við bara með special features diskinn, sem sagt commentary frá leikstjóra og einhvað kjaftæði.
Og löngu búið að loka vídjóleigunni... Við förum útí bæ lyktandi einsog tveir hákarlar að reyna að redda okkur nýrri mynd sem blessaðist alveg ágætlega.
Man ekkert hvað myndin hét en hún var allavega góð.

Allt er gott sem endar vel, en á tímabili sáum við fram á að vera tveir saman að horfa á Notebook (sem er eina mynd sem rjóminn ég á.) yfir kertaljósum og Coca Cola.

Ætla að halda í hefðirnar og deila með ykkur fegurð minni, og reyndar í þessu tilfelli annarra líka.


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.03.2007 02:16:29 / palloskar

Jeáff:D

 

 Jæja sjetturinn maður hefur ekki bloggað síðan andri rakaði af sér hárið. En jæja nú eru við allir að ég held að fara drekka rækilega í það á morgun aðeins að sýna að við séum enþá með hár á typpinu þar sem við höfum verið kéllingar á próteini undafarna mánuði.

 En síðan eftir hva 3 vikur verður akureyrarferð þar sem úrvalslið frá skagnum eru búin að leiga sér íbuð því við látum okkur ekki detta í hug að sofa í íþróttahúsi með skitnum borgnesingum. Þar verður sko djammað af sér hægri rasskinnina.

 

Síðan hefur maður komið að þeim merka áfanga í lífinu að getað loksins talað við Gillz þar sem ég get verið talsmaður Hommacrewsins ef við höfum eitthvað ótalað við hann.

 Þar sem ég lokið mér af verð ég að shera með ykkur 2 lögum herna sem ég er buinn að vera hlusta á undanfarna daga

 Meat Loaf - It´s All Coming back to me Now   og       Mika  -  Relax,Take it Easy

 

GeiR..8)


» 7 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 19:13:58 / palloskar

Dancefloor killer

Wass wass up!

Var hérna að átta mig á því að það er vika þangað til ég og Andri erum að fara til reynslu hjá Hollenska efstu deildarliðinu Heerenveen, en við erum ekkert að stressa okkur á þessu, vitum það að eftir 2 mánaða stíft hlaupaprógramm erum við í mun betri þjálfun heldur en þessir atvinnumenn. En þetta gengur þannig fyrir sig að þetta er 5 daga trial tími sem við fáum til að sanna okkur, og þið vitið það að ef við verðum ekki komnir aftur eftir 5 daga þá erum við strákarnir orðnir atvinnumenn í knattspyrnu.

Erum reyndar svo flughræddir að við neyðumst til að hella í okkur 1-2 fyrir flugið... og talandi um flughræðslu.. þá náði ég áðan að hefna fyrir einelti sem hefur spannað margar vikur... haaa? Ég veit alveg að þú lest þetta ;D

En það var skákmót í gær í skólanum. Stórveldið sendi 2 menn til leiks annars vegar mig, og hins vegar Þór nokkurn Birgisson fyrrverandi skákmeistara NFFA. Það er skemmst frá því að segja að ég náði mínu eina markmiði í þessu móti og það var að leggja fyrrverandi skákmeistarinn, og mér tókst það, og var ekki lengi að... tók mig ekki nema 7 mínútur að rótbursta mann sem var fyrir mótið talinn besti taflmaður skólans. Eftir að ég sá hvað ég var snöggur að vinna sitjandi meistara þá tók ég þá ákvörðun að þátttöku minni í þessu móti væri lokið, enda ekki mikið meira sem hægt er að gera á svona mótum þegar maður er búinn að vinna meistarann.

Hef ákveðið að gleðja kvenkynið með því að gera það að hefð að láta alltaf eina mynd af sjálfum mér fylgja hverri færslu.

Og talandi um kvenkynið þá fannst mér við hæfi að gleðja Spilakassa-Valdz með því að sýna yfirburði mína á snjónum, hvort sem það er á brettinu eða í því að spotta píur í bláfjöllum!


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 21:46:34 / palloskar

There's gonna be a soul shakedown party tonight

Góðan daginn skrímslabær!

Ég, Gummi og Magnús kíktum á bretti í bláfjöll áðan, og var alveg ágætt, lentum í svaka fínu veðri, alveg logn og sól :D en færið var samt ekkert sérstakt.

Skemmtum okkur alveg ágætlega þó svo að ég sé alveg búinn að finna það út að maður þarf að finna sér nýja ferðafélaga, þar sem þessir 2 eru báðir alveg steingeldir þegar kemur að því að spotta brettapíurnar. Maður var kannski búinn að þjóta framhjá einhverjum píum og ætlar að setjast niður og skoða þetta nánar, neinei þá þeytast þeir bara framhjá manni og skilja hvorki upp né niður í því af hverju maður var að setjast.

Síðan var ég einusinni búinn að spotta svaka gellur og ætla svona að chilla á leiðinni niður, neinei þjóta þeir ekki bara á fleygiferð niður og ákveða að fara fá sér að éta loksins að maður fann almennilegar píur til að specca! Enda keppast þeir alveg við hvorn annann um titilinn creammaster 2007.

Vill fá Andra eða einhvern með næst, síðan þarf maður að fara ná GeiR inní þetta, þá verða dagarnir nýttir til fullnustu.

En kýs að enda þessa færslu með mynd af sjálfum mér, en maður er náttúrulega alveg með tanið uppá 9,3 eftir svona sólríkan dag.

Herra Arnardalur hvað?


» 12 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 15:23:40 / palloskar

Góða kvöldið

Já ég hef ákveðið að smella í eina færslu hérna um daginn og veginn.

Það sem er helst að frétta er náttúrulega það að hollenskir útsendarar stórliðsins Heerenveen (hvað eru mörg e í því?) mættu að sjá okkur strákanna í fótbolta um daginn á gervigrasinu í grundaskóla og endaði það auðvitað þannig að mér og Andra var boðið á reynslu hjá félaginu 29. Mars til 6. Apríl sem er eftir 13 daga ef útreikningar mínir standast. Fljúgum til Amsterdam og hver veit nema maður taki stutt pitstopp í Rauða hverfinu (Andri fer í fjólubláa) á leiðinni austur til heerenveen.

Svona svo þið fáið smá info hvað hefur drifið á dagana hjá okkur strákunum undanfarið ætla ég að koma með info um hvað allir eru að gera.

Ég og Andri sem sagt á leiðinni í atvinnumenskuna.

Gummi hálfdauður um daginn og er að fara byrja vinna á mánudaginn.

Þór alveg grillaður.

Aron kominn með vinnu sem uppvaskari í grundaskóla.

Spilakassa Valdz kominn í meðferð við spilafíkn (fyrirséð).

Magnús Geir harður sem leir.

GeiR þverneitar fyrir að vera spilafíkill og tekur það ekki í mál að fara með Valda í meðferð.

En nú er ég rokinn í ljós með Salasi Sæfara, vona að þetta hafi svalað fróðleiksþorsta einhverra.

Dj Robbi Diskó kveður að sinni.


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 17:06:41 / palloskar

Stjórnmálafundurinn áðan...

Var á stjórnmálafundi í skólanum mínum áðan, eða Fjölbrautaskóla Vesturlands, Akranesi þar sem fulltrúar flokkanna fimm sem hafa ákveðið að bjóða fram til kosninga komu fram og áttu s.s. að kynna stefnu síns flokks og svara fyrirspurnum fránemendum (að mér skildist).

Það var nú ekki mikið sem kom útúr þessum fundi fannst mér, allir frambjóðendur voru sammála öllu því sem fólk lagði til að breyta og bæta og var svona svolítill kosningaþefur af þessum fundi, skil ekki alveg hvernig það getur staðist að allir nema Kristinn H. Gunnarsson sem talaði fyrir frjálslynda séu sammála því að lækka áfengiskaupaaldurinn niður í 18 ár meðan staðreyndin er sú að hann er ennþá 20 ár.

Einnig skil ég ekki af hverju ennþá er verið að rukka 900 krónur í gegnum Hvalfjarðargöngin meðan allir flokkar eru sammála um að afnema eigi gjaldið. Það hljóta nú bara allir að hafa fattað að þetta getur ekki staðist, að mennirnir sem ráða og meira að segja þeir sem ekki ráða séu ósammála eigin lögum en séu þó ekki búnir að breyta þeim..
Svo vakti líka athygli mína að bæði allir fulltrúar sögðust vera á móti þessari "klámráðstefnu" sem átti að halda hérna um daginn, þ.m.t. frambjóðendur framsóknar og sjálfstæðisflokks, og er þeirra sjónarmið það að þetta komi óorði á Ísland.

Þeir hafa ekki hugsað til þess að passa uppá orðsporið þegar þeir sýndu samstöðu með Íraksstríðinu fyrir nokkrum árum og hafa ekki enn haft fyrir því að biðjast formlega afsökunar á því og viðurkenna mistök. Sem eru mun stærri heldur en einhver ráðstefna um klám sem enginn hafði áður heyrt um.
Og nei, mér finnst ekki nóg að gera það fyrir framan nokkra skólakrakka einsog framsóknarmaðurinn gerði áðan.

Annars fannst mér kosningastjóri Samfylkingarinnar hafa orðið sér og flokknum sínum til skammar áðan þegar hann fór að spurja spurninga sem að mér skildist átti að vera hlutverk nemenda á þessum fundi en ekki stjórnmálaflokka og spurði alla flokkanna nema sinn eigin alveg fáránlegra spurninga og sérstaklega fannst mér hann hafa gert sig að fífli þegar hann fór hálfpartinn að gera grín að Kristni H. Gunnarssyni fyrir að hafa skipt um stjórnmálaflokk, sem á auðvitað að gera þegar menn eru meira sammála öðrum flokk en þeir eru á lista hjá.

En þetta er bara svona það sem mér fannst um þennan fund, býst nú samt við því að það komi meira útúr honum á næsta ári þegar það er lengra í kosningar og menn eiga þá vonandi eftir að þora að segja sínar skoðanir og rökstyðja af hverju ekki sé búið að breyta hlutum sem þeim finnst þurfa að breyta.


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 16:04:02 / palloskar

Kallinn 18 ára

ég á amæli i dag og þeir sem er ekki bunir að segja "til hammó með ammó" munu ekki eiga sjö dagana sæla hér eftir:D

En dagur var flottur fór með geir uti shell og leysti fyrir hann 2 miða ur kassanum því kallinn er 18

Svo á morgun verður skellt sér beint á tattostofuna og láta tattúvera bara "ANDRI" því ég elska mig meira en allt annað.

speglar þessa dagana eru lika að valda mer miklum vandræðum. fara svona 2 timar í þá á dag...sem telur

en ja hr.bísep kveður á þjóðhátíðardegi íslands

p.s. rakel þú ert með illa rakaða kuntu, kunta


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 15:56:00 / palloskar

Hjálpi mér

Já ástæða þessarar færslu er sú að við strákarnir vorum að gátta okkur á því hvað busar þessa árs eru frakkir.

Einsog flestir vita er mikil borðamenning í skólanum okkar en einhvað hefur það farið fram hjá busum þessa árs því við töldum í dag heil 4 hringborð sem busarnir hafa lagt undir sig, auk þess sem þau eru á góðri leið með að yfirtaka eitt langborðið. Og þetta er fyrir utan alla busana sem setjast bara þar sem rassinn hvílir og er skítsama um hefðir og reglur.

Þessi færsla er alls ekki tileinkuð öllum busum en þeir taki þetta til sín sem eiga.

En ég var að spá í að koma með lag dagsins sem er án efa Rottweiler hundur af nýja disknum hans Bent, Rottweiler hundur. Þetta lag er eitt það besta sem hefur gerst í íslensku rappi síðan seinni diskur rottweiler kom út og er yndislegt að sjá þá félaga komna saman aftur, Bent og Blaz. En parturinn hjá þeim síðarnefnda er algjört gull einsog flest allt sem útúr þessum manni kemur. Yeeeaahh Thundeerrr.

Að lokum ætla ég að koma með einn tvíundakerfis brandara í boði Eika.

"Það eru aðeins til 10 gerðir af mönnum. Þeir sem kunna tvíundakerfið, og þeir sem kunna það ekki."

Róbert Ketilsson


» 15 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 04:11:35 / palloskar

hahahahaha

Ég þakka nú bara guði fyrir að ekki er allt sem sýnist :D

- Róbert


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.01.2007 18:00:50 / palloskar

Nú verður ekki aftur snúið

Jæja þá er það komið á hreint, það verður ekki aftur snúið, fyrsti bjórinn hefur verið opnaður og Sneaky Valdz og Slagsmála Dan á leiðinni að sækja mig og svo verður haldið í nýársglaðning stórveldisins í sumarbústað á Munaðarnesi.

Já, ég, Aron og Valdi höfum ákveðið að þjófstarta gleðskapnum enda finnst okkur aldrei úr vegi að byrja helgarnar á miðvikudegi. Hinir slúbbertarnir fara að týnast inn svona fimmtudag - föstudag... Ennnnnn það er ekki þeim að kenna.

Gestir... það eru þónokkrar píur búnar að bóka komu sína og þar er kannski ekki úr vegi að nefna sjálfa konu ársins.. auk þónokkurs slatta af utanbæjarstelpum.

En þetta lýtur allt saman mjög vel út, heitur pottur verður á svæðinu svo ekki klikka á bikiníinu.

Róbert Ketilsson þakkar fyrir sig með nýárskveðju.


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12